Leikur dagsins

Auglýsing

Leit

Atburðarteljari

Hello

10. febrúar 2007 klukkan 20:26


Gleðilegt nýtt ár og
sorrý hvað það er langt síðan ég skrifaði síðast.
Það var *gg* flott hjá Íslendingum á
Hm í HandboltaHlæjandi
Núna er ég bara í tölvunni hjá ömmu bara að leika mér.Ullandi
Það væri gaman ef þoð gætuð skrifað í gestabókina þeir sem lesa þetta.
En heirumst aftur bráðum
Bæ bæ
Kv.
Snæja Brosandi

2007!!!!!

01. janúar 2007 klukkan 01:58
Eftir Fjóra tima verður komið árið 2007 og ég hlakka geðveikt til Hlæjandi
Ég ætla að skjóta upp nokkra flugvelda og það verður örugglega ógeðslega gamanSvalur 
Vonandi skemmtið þið ykkur velGlottandi
Kv. Snædís Erla

GLEÐILEG JÓL:)

26. desember 2006 klukkan 21:35

Í dag er annar í jólum og ég er hjá frænku í hangikjöti. Við erum bráðum að fara að borða.
Á aðfangadag fékk ég fullt af flottum gjöfum.Hlæjandi
Frá mömmu fékk ég Cintamani flíspeysu ógeðslega flotta, svo fékk ég Adidas inniskó líka frá
mömmu.HlæjandiGlottandiHlæjandi
Svo fékk ég spil, húfu, geisladiska, dvd og fullt fleira mjög flott.Brosandi
Í gær fór ég í tvö jólaboð eitt hjá mömmu og pabba Olgu(kærustu pabba) og svo hjá ömmu og afa í pabba ætt.
Verða að fara.Óákveðinn
Gleðileg jól gott og farsælt komandi ár.
LoveUllandi
    Snædís Erla

Bráðum koma jólin!!!!

19. desember 2006 klukkan 23:40

Í DAG ERU BARA 3 DAGAR TIL JÓLA og ég hlakka geðveikt tilHlæjandi
Ég er búin að biðja um margt í jólagjöf og vonandi fæ ég eitthvað flott.Ullandi
Ég er líka komin í jólfrí og er hjá frænku núna því hún er í fríi.
Á morgun kemst mamma í smá frí en svo þarf hún aftur að vinna á milli jól og nýárs.
Verð að fara.
Kv. Snæja pæjaKoss

Hæ hæ:)

03. desember 2006 klukkan 21:28
Núna er ég hjá ömmu að baka smákökur fyrir jólin.
Ég er búin að smakka smá. Þær eru rosalega góðar.Hissa
Í skólanum erum við að æfa jólaleikritið fyrir jólaballið sem er einhvertíman í Desember.
Ég leik strák sem heitir Laddie og Eyrún vinkona mín leikur bróðir minn sem heitir Addie. Við eigum að dansa við eitt lag í leikritinu. Þetta verður mjög gamanGlottandi

Ég held að núna séum við búin í öllum prófunum sem er mjög gott.
Heyrumst seinna
Kv. Snæja

Hæhæ

19. nóvember 2006 klukkan 20:02
Í gær fór ég til frænku minnar sem býr á Akranesi.
Hún er jafn gömul mér og ég gisti hjá henni í nótt sem var mjög gaman.
Þegar við vöknuðum var allt á kafi í snjó og við fórum strax út að leika okkur.
Svo núna er ég að fara í strætó heim til Reykjavíkur.
Í næstu viku er ég að fara í tvö próf.
Eitt í KristinfræðiSaklaus og annað í DönskuUllandi
Svo vona ég að þessi próf fara að vera búin.
>Bæjó<
Snædís Erla

Hello

18. nóvember 2006 klukkan 18:45

Hæ hæ Glottandi
Í dag var ég að fá nýja síðu og vonandi skemmtið þið ykkur vel á henni.
Kær kveðja
Snædís ErlaHlæjandi

Klukkan

Könnun

Með hvaða liði heldur þú með í ensku úrvaldsdeildinni??

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...